flugfréttir
Myndir af nýjum merkingum á 01/19 brautinni á KEF
02/20 brautin á Keflavíkurflugvelli heitir núna 01/19
Hér koma nokkrar myndir í tengslum við frétt sem birtist fyrr í dag á Alltumflug.is um flugbrautina 02/20 á Keflavíkurflugvelli sem breyttist í gær í 01/19.
Í fréttinni kom fram að það ætti eftir að mála nýju númerin í brautarendana og að það yrði gert í sumar en það
er rangt og leiðréttist hér með.
Allar merkingar voru gerðar á einni nóttu, aðfaranótt 28. apríl, og má sjá á meðfylgjandi myndum er málningarvinnan
fór fram en einnig var skipt um öll skilti sem tilgreindu 02/20 brautina og sett upp nýjar merkingar fyrir 01/19.
Þess má geta að 02/20 brautin hefur haldist óbreytt í nokkra áratugi en þar á undan var brautin með númerin 03/21 en ástæða breytingarinnar er vegna misræmis á segulpólum jarðar sem veldur „vestan-misvísun“
á Íslandi.
Sjá nánar frétt: Keflavíkurflugvöllur kveður 02/20 og tekur í notkun 01/19
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.