flugfréttir

FAA flýtir úttekt á starfsemi Allegiant Air vegna fjölda tilvika

29. apríl 2016

|

Frétt skrifuð kl. 21:51

McDonnell Douglas MD-83 vél Allegiant Air

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) eru nú að gera úttekt á rekstri bandaríska flugfélagsins Allegiant Air í kjölfar fjölda atvika sem hafa komið upp á félaginu að undanförnu.

Til stóð að framkvæma reglubundna úttekt á rekstri Allegiant Air árið 2018 samkvæmt áætlun en í ljósi fjölda atvika telja yfirvöld að nauðsynlegt sé að skoða rekstur félagsins sem fyrst en FAA tekur út rekstur flugfélaga á fimm ára fresti.

Úttektin hófst fyrr í þessum mánuði en stjórn Allegiant Air segist taka því fagnandi hendi en það kemur fyrir að bandarísk flugmálayfirvöld flýti skoðun og athugun á rekstri flugfélaga í kjölfars atvika, verkfallsaðgerða eða breytinga í stjórn flugfélaga.

FAA segir að meginorsök þess að verið sé að skoða rekstur félagsins sé tilkomið vegna tveggja atvika sem áttu sér stað í fyrra þar sem farþegaþota frá félaginu hætti við flugtak í Las Vegas í fyrra og vegna atviks er önnur flugvél varð næstum því uppiskroppa með eldsneyti.

FAA hafði lokað málinu þar sem Allegiant Air gerði viðeigandi ráðstafanir og bætt öryggisatriði en samt sem áður komu upp enn fleiri atvik í kjölfarið og þar á meðal tilfelli þar sem eldur kom upp í hreyfli í flugtaki í Las Vegas.

Nokkrir sérfræðingar á sviði flugöryggis vestanhafs sögðu í febrúar að aðeins væri tímaspursmál hvenær flugslys eigi eftir að eiga sér stað hjá Allegiant Air en frá því í ársbyrjun árið 2015 hafa komið upp 25 tilvik hjá félaginu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga