flugfréttir

Flugstjóri flaug með syni sínum í fyrsta sinn í sínu síðasta farþegaflugi

30. apríl 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:52

Richard Hocking og sonur hans Henry flugu saman frá London Gatwick til Cancun

Breskur flugstjóri, sem er komin á eftirlaunaaldur, lauk sínum flugferli á dögunum með því að fljúga sitt seinasta flug með son sinn sem aðstoðarflugmann.

Feðgarnir, sem fljúga báðir fyrir Thomson Airways, hafa aldrei áður flogið saman þar sem flugáætlun þeirra hefur aldrei sameinað þá í sömu áhöfnina.

Richard Hocking, sem er 64 ára, hefur flogið fyrir Thomson Airways í 41 ár en hann deildi stjórnklefanum á Dreamliner-vél félagsins með syni sínum, Henry, á dögunum er þeir flugu saman frá London Gatwick til Cancun eftir að flugfélagið ákvað að sameina þá í síðasta fluginu.

Feðgarnir hafa flogið fyrir Thomson en aldrei áður saman

Richard ávarpaði farþega fyrir brottför og sagði að um mjög sérstakt flug væri að ræða þar sem hann væri að fljúga með syni sínum sér á hægri hönd sem aðstoðarflugmann.

Henry, sem er 33 ára, hefur flogið fyrir Thomson Airways í þrjú ár en Richard hefur yfir 25.000 flugtíma að baki en hann segist hvergi nærri hættur að fljúga þrátt fyrir að hann muni kveðja farþegaflugið þar sem hann mun halda áfram að fljúga á lítilli flugvél sem hann á hlut í.

„Flugið hefur alltaf verið mín ástríða. Ég á hlut í lítilli flugvél á Redhill flugvellinum þannig ég mun taka í hana við og við þegar veður er gott“, segir Richard.

Sonur hans, Henry, hefur haft þann draum að vera flugmaður síðan hann var lítill og það var ekkert sem stöðvaði hann í að láta þann draum verða að veruleika.

„Það eru margir í fluginu í ættinni og fyrstu minningarnar mínar í bernsku er að hafa setið í flugstjórnarklefanum með pabba og sjá hann ýta á alla takkana“, segir Henry en afi hans starfaði einnig í fluginu, auk þess sem móðir hans var flugfreyja og þá á hann bæði bróðir og systur sem einnig starfa innan flugsins.

Feðgarnir stilla sér upp með áhöfninni fyrir brottför til Cancun







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga