flugfréttir

Fyrsta flugvélin í nýjum litum LATAM

- 321 flugvél verða málaðar fyrir árið 2018 í nýja útlitinu

30. apríl 2016

|

Frétt skrifuð kl. 16:33

Fyrsta farþegaþota félagsins sem hefur verið máluð í nýju litunum

Suður-Ameríska flugfélagið LATAM hefur kynnt nýtt útlit á flugvélum félagsins sem varð til við sameiningu flugfélagsins LAN Airlines í Chile og TAM Linhas Aéreas í Brasilíu.

LATAM kynnti nýtt lógó fyrir flugfélagið í ágúst í fyrra en félögin sameinuðust árið 2012 og hefur sameiningarferlið staðið yfir í 4 ár.

Allar flugvélar í flota LATAM munu verða hvítar með merki félagsins framan á vélunum en stélið verður með mynstri í rauðum og bláum lit með gráu ívafi.

Á morgun mun félagið fljúga fyrsta flugið undir nýjum litum með Boeing 767 vél sem er fyrsta vélin sem hefur verið máluð í nýja útlitinu en um sérstakt flug er að ræða frá Rio de Janeiro til Genf í Sviss þar sem flugvélin mun sækja Ólympíueldinn fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í ágúst.

Tölvugerð mynd af Airbus A350 vél félagsins í litum LATAM

Áætlunarflug með vélinni hefst svo þann 5. maí og mun hún fljúga daglega til að byrja með milli Guarulhos-flugvallarins í Sao Paulo og Santiago í Chile á meðan önnur vél í nýju litunum, sem er af gerðinni Airbus A319, mun fljúga milli Santiago og Lima og Sao Paulo og Brasilia.

Stefnt er að því að mála yfir 50 þotur fyrir lok þessa árs en allur flugflotinn verður komin í nýja útlitið árið 2018.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga