flugfréttir

Harðar deilur hafa skapast um flugvöllinn á Gibraltar

- Vilja að samgönguráðherra ESB grípi inn í deilur Breta og Spánverja

1. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:08

Flugvöllurinn í Gibraltar

Nokkrir helstu leiðtogar í flugiðnaðinum í Evrópu hafa farið fram á við samgönguráðherra Evrópusambandsins að grípa inn í deilur sem hafa skapast milli Breta og Spánverja um flugvöllinn í Gíbraltar.

Deilur hafa skapast varðandi það hvort flugvöllurinn eigi að lúta að reglugerðum Evrópusambandsins eins og önnur lönd sem eru meðlimir í ESB en þar sem Gíbraltar tilheyrir Bretum þá heyrir flugvöllurinn undir bresk flugmálayfirvöld.

Yfirvöld á Gíbraltar eru nú komin í deiluna ásamt ferðamálaráði Gíbraltar en forsvarsmenn flugfélaga, yfirmenn flugvallarins, flugumferðarstjórar og flugvélaframleiðendur hafa skrifað spænskum og breskum yfirvöldum bréf þar sem varað er við því að deilurnar gætu farið að hafa skaðleg áhrif og er farið fram á að samgöngumálaráðherra Evrópu taki málið fyrir á fundi sem fram fer þann 7. júní.

Bresk stjórnvöld á Gibraltar ítreka það að flugvöllurinn sé innan þeirra landsvæðis en staðsetningin hefur valdið deilum þar sem stjórnvöld í Madríd íteka að flugvöllurinn sé staðsettur á deilusvæði sem var aldrei hluti að sáttmálanum sem gerður var fyrir þremur öldum síðan er Spánverjar létu Breta fá Gibraltar árið 1713.

Leiðtogar marga flugfélaga, stofnana og annara samtaka í fluginu segja að ástandið varðandi Gibraltar-flugvöll sé að verða óþolandi þar sem Bretum og Spánverjum kemur ekki saman en Bretar saka Spánverja um að hafa brotið samkomulag um samstarfs sem undirritað var árið 2006.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga