flugfréttir

Delta pantar 37 þotur af gerðinni A321

1. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:35

Delta Air Lines hefur fengið þrjár Airbus A321 vélar afhentar frá því í mars

Delta Air Lines lagði fyrir helgi inn pöntun til Airbus í 37 farþegaþotur af gerðinni Airbus A321 en pöntunin var gerð aðeins einum degi eftir að flugfélagið bandaríska pantaði 75 eintök af CSeries CS100 þotunni frá Bombardier.

Heildarverðmæti pöntunarinnar er metið á 518 milljarða króna en talið er að Delta Air Lines muni fá meira en 50% afslátt af þeirri upphæð og væri því að fá hverja Airbus A321 vél fyrir sjö milljarða.

Delta segir að félagið muni koma til með að skipta út McDonnell Douglas MD-88 vélunum fyrir Airbus A321 vélunum en félagið mun einnig nota þær til að skipta út þeim Boeing 757 vélum sem margar hverjar eru komnar til ára sinna en Delta hefur 120 Boeing 757-200 vélar í flota sínum.

Þetta er í þriðja skiptið sem Delta Air Lines pantar farþegaþotur úr Airbus A320 fjölskyldunni á þremur árum en Delta fékk sína fyrstu Airbus A321 vél afhenta í mars á þessu ári.

Stór hluti af nýju Airbus A321 vélunum verða afhentar úr nýju flugvélaverksmiðjunum í Mobile í Alabama sem hefur verið starfrækt frá því í júní í fyrra.

Delta Air Lines hefur 165 Airbus-vélar í flota sínum í dag, 69 af gerðinni Airbus A320, þrjár Airbus A321 og fjórtán Airbus A330 vélar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga