flugfréttir
Orrustuþotur til móts við Boeing 777 frá BA eftir að samband rofnaði
Ljósmyndir náðist af orrustuþotunni út um glugga vélarinnar og af báðum vélunum á jörðu niðri
Orrustuþotur frá ungverska flughernum voru ræstar út í gær af öryggisástæðum til að koma til móts við farþegaþotu af gerðinni Boeing 777 frá British Airways.
Vélin var yfir Ungverjalandi þegar þegar samband rofnaði við vélina og
var ákveðið að senda af stað tvær orrustuþotur af gerðinni Saab JAS 39 Gripen
til að bera kennsl á hana og ganga úr skugga um hvort allt væri með felldu.
Vélin var á leið frá Dubai til London Heathrow þegar flugumferðarstjórar í Ungverjalandi
náði ekki samband við flugmennina en orrustuþoturnar fylgdu vélinni áfram uns samband
var komið aftur á.
Vélin var á leið frá Dubai til London Heathrow í gær þegar sambandið rofnaði
Talsmaður British Airways segir að sambandið hafi komist á mjög fljótlega og lenti
vélin giftusamlega á Heathrow.
Hér að neðan má sjá myndband sem farþegi um borð í vélinni tók út um gluggann
er önnur Gripen-orrustuþotan kom upp að vélinni á hægri hönd.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.