flugfréttir

Þriðjungur flugliða nota svefnlyf og flestir ná ekki 7 tíma svefni fyrir flug

2. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 09:01

Um helmingur þeirra sem tóku þátt í könnunninni sem sögðust hafa flogið þrátt fyrir veikindi

Ný rannsókn sem gerð var á Írlandi hefur leytt í ljós að um þriðjungur allra flugfreyja og flugþjóna þar í landi taka svefntöflur til að berjast við þau svefnvandamál sem fylgja starfinu.

Um 470 flugliðar tóku þátt í rannsókninni sem gerð var af verkalýðsfélaginu Impact en könnunin leyddi m.a. í ljós að meðalsvefn þeirra sem tóku þátt var 6 klukkustundir og 45 mínútur sem þykir ekki nægur svefntími.

Þá kom fram að um 90% flugliða sögðust eiga í vandamáli með að ná að festa svefn og vöknuðu a.m.k. einu sinni á nóttunni.

Svefnfræðingurinn Dr. Neil Stanley segir að það komi ekki á óvart ef flugliðar eru þreyttir í vinnu og að svefnröskun hafi áhrif á störf þeirra og einbeitingu um borð.

Stanley, sem er yfirmaður hjá American Sleep Association, segir að mörgum svefnlyfjum geti fylgt aukaverkanir á borð við svefnleysi og að nota slík lyf til að sporna við flugþreytu getur valdið því að þreyta renni á þá sem starfa í fluginu á meðan þeir eru við störf og þurfa að vera velvakandi.

Áhöfn hjá Are Lingus

Þá var um helmingur þeirra sem tóku þátt í könnunninni sem sögðust hafa flogið þrátt fyrir veikindi en í 39.4% tilvika var ástæðan að komast hjá veseni við yfirmenn sína hjá flugfélaginu en 28.6 prósent töldu veikindin hafa ekki verið nægilega mikið til að hringja sig inn veika.

Þá voru um 80 prósent flugliða hjá Aer Lingus sem sögðu að þau hafi ekki fengið tíma til að fá sér að borða í vélinni þar sem það var hreinlega of mikið að gera og nefndu margir að slíkt hefði komið fyrir a.m.k. fjórum sínnum á því 28 daga tímabili sem rannsóknin stóð yfir.

Meirihluti þátttakenda sögðust hafa unnið lengur en í 9 klukkustundir á meðan þriðjungur sagði hafa flogið eitt flug yfir 13 klukkustunda tímabil.

Flestir sögðu hafa aðeins einu sinni á þessu 28 daga tímabili náð 12 tíma hvíl sem er sá löglegur hvíldartími sem farið er fram á að áhafnir nái að hvílast á milli flugferða en verkalýðsfélagið Impact segist ætla nota niðurstöðurnar til að ganga úr skugga um að stjórn flugfélagsins fari eftir reglum og lögum er varðar hvíldartíma.

Aer Lingus segir í yfirlýsingu sinni: „Við, eins og önnur flugfélög, framfylgjum ströngustu reglugerðum er varðar heilsu starfsfólks okkar“.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga