flugfréttir

Japanir í vanda með að ferja MRJ tilraunavélar til Bandaríkjanna

- Gætu haft viðkomu á Íslandi ef þeim verður flogið vestur á bóginn

2. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:06

Mitsubishi Regional Jet vélin (MRJ)

Mitsubishi Aircraft stendur frammi fyrir óvenjulegu vandamáli þar sem japanski flugvélaframleiðandinn á í erfiðleikum með að koma nýju Mitsubishi Regional Jet (MRJ) tilraunavélunum til Bandaríkjanna þar sem þeirra bíða flugprófanir en vandamálið eru Rússar og styrkt samband milli þeirra og Japana.

Fyrstu MRJ þoturnar sem hafa verið framleiddar þurfa að komast til norðvesturstrandar Bandaríkjanna nálægt Seattle en þar sem flugþol tilraunavélanna er aðeins 2.100 kílómetrar þá þyrfti vélin helst að taka Alaska-leiðina til norðausturs yfir Rússland, yfir Beringshaf og þaðan yfir til Alaska og stoppa á nokkrum stöðum til að taka eldsneyti á leiðinni til Seattle.

Þar sem ekki er víst að Rússar muni samþykkja að fá Mitsubishi Regional Jet vélina inn í sína lofthelgi þá er Mitsubishi Aircraft að íhuga möguleika á að fljúga henni beint yfir Kyrrahafið með viðkomu á Hawaii.

Tæknilega séð gæti vélin flogið til Hawaii frá Japan sem eru 6.000 kílómetrar en þá þurfti að koma fyrir viðbótareldsneytistanki en flugvélaframleiðandinn er að velta því yfir sér hvort það sé þess virði fyrir aðeins eina flugferð en frá Hawaii áfram til meginlands Bandaríkjanna eru svo 4.000 kílómetrar.

„Upp á vegalengdina þá er norðurleiðin yfir Kamchatka-skagann, Beringssund og Alaska sú leið sem er besti kosturinn þar sem sú flugleið er 8.000 kílómetrar“, segir yfirmaður Mitsibishi Aircraft en óljóst er hvort að stjórnvöld í Moskvu munu leyfa japanskri tilraunavél að fljúga yfir þeirra landssvæði.

Síðasti kosturinn er að fljúga vélinni þvert yfir meira en hálfan hnöttinn til vesturs yfir Suðaustur-Asíu, Miðausturlönd og þaðan til Evrópu og áfram yfir Atlantshafið en þá myndi vélin mögulega taka eldsneyti á Keflavíkurflugvelli ef sá möguleiki verður fyrir valinu.

Sú leið vær yfir 20.000 kílómetra löng og myndi auka líkurnar á því að bilun kæmi upp eða ófyrirsjáanleg vandræði að sögn Mitsubishi Aircraft.

Mitsibishi Regional Jet (MRJ) flaug sitt fyrsta flug í nóvember í fyrra og hafa flugprófanir farið fram eingöngu í Japan hingað til en nú er stefnt að því að fara með fjórar til fimm tilraunavélar til flugvalla í Bandaríkjunum sem eingöngu eru notaðir fyrir tilraunaflug fyrir flugvélaframleiðendur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga