flugfréttir
Philippine Airlines staðfestir pöntun í sex Airbus A350-900
Tölvugerð mynd af Airbus A350 í litum Philippine Airlines
Philippine Airlines hefur staðfest pöntun í sex Airbus A350-900 vélar en félagið gerði fyrr á þessu ári samkomulag við Airbus um kaup á vélunum á flugsýningunni í Singapore.
Airbus A350 mun verða flaggskip langflugsflotans og segir Jaime Bautista, forstjóri Philippine Airlines, að vélarnar
verði notaðar aðallega í flugi frá Manila til Bandaríkjanna og einnig til nýrra áfangastaða í Evrópu.
Pöntunin er metin á 220 milljarða króna og munu afhendingar hefjast árið 2018 en flugfélagið lagði einnig inn pöntun
til Rolls-Royce fyrir hreyfla fyrir vélarnar að andvirði 73 milljarða króna.
Airbus A350-900 vélarnar munu koma með þremur farþegarýmum sem munu taka um 300 farþega en vélarnar
munu m.a. gera félaginu kleift að fljúga beint frá Manila til New York.
Philippine Airlines hafði einnig skoðað möguleika á Dreamliner-vélinni en Airbus A350 varð fyrir valinu þar sem félagið
taldi þá vél henta betur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.