flugfréttir

Breytt dagsetning: Heimboð hjá Flugakademíu Keilis verður 11. júní

4. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:11

Heimboð fyrir verðandi atvinnuflugmenn verður haldið laugardaginn 11. júní

Breyting hefur orðið á dagsetningu á heimboði fyrir verðandi atvinnuflugmenn sem til stóð að færi fram laugardaginn 21. maí hjá Flugakademíu Keilis.

Ný dagsetning er 11. júní næstkomandi frá klukkan 10 til 14 en þá verður áhugasömum boðið að kynna sér fyrirkomulag og uppbyggingu flugnámsins, skoða aðstöðu og kennsluflota skólans sem samanstendur af sjö vélum sem eru af gerðinni Diamond DA-20-C1 Eclipse, DA-40 Tdi Diamond Star og DA-42 NG New Generation.

Áhersla er lögð á persónulega móttöku og vettvang fyrir gesti að fá svar við þeim spurningum sem á þeim brenna. Þá munu gestir hafa möguleika á því að ræða við flugkennara og nemendur skólans, auk þess sem boðið er upp á kynnisflug á sérstöku tilboðsverði fyrir þátttakendur. Gestum er velkomið að taka með sér foreldra, maka eða aðra þá sem hafa löngun til að fá innsýn inn í þennan heim.

Kynningin fer fram í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú og verklegri deild Flugakademíunnar á Keflavíkurflugvelli og er gestum beint á að taka með sér skilríki (vegabréf eða ökuskírteini) þar sem farið verður inn á flugverndarsvæði Keflavíkurflugvallar.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku og borga 1.000 kr. staðfestingargjald. Innifalið í verðinu eru veitingar. Nánari upplýsingar og skráning á www.keilir.net/flugakademia/nam/um-flugakademiuna/frettir/heimbod-fyrir-verdandi-atvinnuflugmenn-1







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga