flugfréttir
Delta mun fljúga frá JFK til Íslands allt árið
Boeing 757 vél Delta Air Lines á Keflavíkurflugvelli þann 2. maí
Delta Air Lines hefur ákveðið að fljúga allan ársins hring til Íslands frá Kennedy-flugvellinum í New York en hingað til hefur félagið eingöngu flogið til landsins yfir sumartímann.
Þetta er sjötta árið sem Delta Air Lines flýgur til Íslands en félagið var fyrr á ferðinni í ár
þar sem fyrsta flugið á þessu ári hófst í febrúar eða þremur mánuðum fyrr en upphafleg
áætlun gerði ráð fyrir.
Ástæðan er vegna mikillar eftirspurnar eftir flugi til Íslands en Delta Air Lines er eina
bandaríska flugfélagið sem flýgur hingað til lands og er flogið daglega en frá og með 29. maí
verður einu aukaflugi bætt við á sunnudögum.
Þess má geta að þann 27. maí mun félagið einnig byrja að fljúga hingað til lands frá Minneapolis
og verður það flug einnig flogið með Boeing 757-200 vélum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.