flugfréttir

13 flugmenn sækja um hverja lausa stöðu hjá SAS

- Aldrei eins margir hafa sótt um í 70 ára sögu SAS

5. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 12:54

SAS leitar af 230 nýjum flugmönnum

Að meðaltali hafa verið um þrettán manns sem hafa sótt um hverja flugmannsstöðu hjá Scandinavian Airlines (SAS) að undanförnu og hafa færri komist að en viljað hjá félaginu.

SAS er meðal þeirra flugfélaga í Evrópu sem hafa sett af stað viðamiklar herferðir í leit að fleiri áhafnarmeðlimum en flugfélagið skandinavíska leitar nú að 230 nýjum flugmönnum og 700 flugliðum.

Um 3.000 flugmenn hafa sótt um þær 230 stöður sem eru í boði hjá SAS sem samsvarar 13 umsóknum á hverja stöðu og um 5.000 manns hafa sótt um þær 700 stöður sem í boði eru fyrir flugliða og er þetta mesti umsóknarfjöldi sem SAS hefur nokkurn tímann séð í sögu félagsins.

„Þessi fjöldi umsókna þýðir að við getum valið úr hæfa umsækjendur og með því er hægt að bjóða upp á mjög góða þjónustu fyrir farþega ef mannauðurinn er vel valinn“, segir Rolf Bakken, yfirmaður starfsmannamála hjá SAS.

Ástæða þess að SAS þarf á fleiri flugmönnum og flugliðum á að halda er sú að félagið hefur bæði hafið flug til nýrra áfangastaða á borð við Los Angeles, Boston og Hong Kong og í haust mun félagið hefja flug til Miami og hefur félagið tekið inn nýjar Airbus A330E vélar í tengslum við þau flug en þá hefur SAS einnig aukið tíðni á aðra áfangastaði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga