flugfréttir
TF-ISO í 1. sæti á Airliners.net
Ljósmyndin klifraði sig úr 3. sæti upp í toppsætið á Airliners.net í gærkvöldi
TF-ISO, önnur Boeing 767 breiðþota Icelandair, var á miðnætti í gær í fyrsta sæti á flugsíðunni Airliners.net
TF-ISO kom hingað til lands frá Kína þann 11. maí sl. og hóf áætlunarflug sl. sunnudag (15. maí) en fyrsti
áfangastaður vélarinnar var London Heathrow.
Vélin hefur fengið nafnið „Hlöðufell“ en áður en vélin kom til landsins var greint frá því hér á Alltumflug.is að vélin heiti
„Bárðarbunga“ en það var ekki rétt og leiðréttist það hér með.
Á þeim þremur dögum sem TF-ISO hefur verið í áætlunarflugi hefur henni verið flogið til New York JFK, London
Heathrow og til Amsterdam líkt og hin breiðþotan, TF-ISN.
Ljósmyndin hér að neðan af TF-ISO var tekin sl. sunnudag er vélin var í sinni fyrstu ferð til New York flugi í aðflugi að 22L brautinni
á Kennedy-flugvellinum.
Smellið hér til að sjá myndina á Airliners.net
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.