flugfréttir

Búið að staðsetja brak flugvélarinnar norður af Alexandríu

20. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:08

Herskip egypska sjóhersins við leitir á Miðjarðarhafi

Egypski sjóherinn hefur lýst því yfir að tekist hafi að staðsetja flak Airbus A320 farþegaþotu EgyptAir sem fórst yfir Miðjarðarhafi í fyrrinótt á leið sinni frá París til Kaíró.

Samkvæmt heimildum hersins er flakið staðsett í um 290 kílómetra fjarlægð norður af borginni Alexandríu og hefur verið staðfest að búið sé að koma augu á brak, farangur og lík á floti og sé verið að gera tilraunir til þess að ná því úr sjónum.

Búið er að setja saman rannsóknarteymi sem er að hefja rannsókn slyssins en Ayman al-Moqadem mun leiða rannsóknina en hann er einnig flugmaður og kom að rannsókninni er rússneska farþegaþotan frá Metrojet var skotin niður yfir Sinai-skaga í október í fyrra.

Bandarísk stjórnvöld hafa farið yfir upplýsingar úr gervitunglum og er ekkert sem bendir til þess að sprenging hafi orðið á þessu svæði eða á flugleið vélarinnar af myndunum að dæma en verið er að skoða myndir og upplýsingar úr öðrum gervitunglum í eigu einkafyrirtækja.

Sérfræðingar segja að útlitið sé ekki gott þar sem flugmenn vélarinnar sendu ekkert neyðarkall áður en hún fórst auk þess sem ekki sé vitað um neina bilun í vélinni sem gekst undir skoðun daginn áður fyrir slysið.

Verið er að fara yfir nöfn allra farþeganna sem voru um borð auk áhafnarinnar og bera saman við upplýsingar úr hryðjuverkagagnagrunni en ógjörningur verður að segja til um orsök slyssins fyrr en búið er að finna svörtu kassanna.

Þá eru bandarísk stjórnvöld að afla upplýsinga um hvort einhver hafi haft aðgang að vélinni þar sem hún hafði fyrr um daginn flogið m.a. til Túnis og Eritreu og hafa verið uppi grunsemdir hvort að sprengju hafi verið komið fyrir í vélinni af flugvallarstarfsmönnum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga