flugfréttir

Áætlunarflug að hefjast með sjóflugvél milli Köben og Árósa

20. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:45

Fjögur ár hefur tekið að undirbúa sjóflugið milli Kaupmannahafnar og Árósa

Sjóflug mun hefjast í næstu viku í Danmörku þegar byrjað verður að fljúga milli Árósa og Kaupmannahafnar með sjóflugvél.

Sjóflugsins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu en það er fyrirtækið Nordic Seaplanes sem stendur á bakvið sjóflugið en fjögurra ára undirbúningur hefur farið í flugið með tilheyrandi umsóknum og pappírsvinnu sem sem farið hefur fram við dönsk yfirvöld.

Meðal annars hefur þurft að sækja um leyfi fyrir lendingar á sjó, gera greinargerð fyrir umverfisáhrifum auk þess sem sérstakir eldsneytistankar hafa verið settir upp fyrir sjóflugvélina.

Farmiðasala hófst í gær og verður fyrsta flugið flogið á miðvikudag en flugtíminn á milli tveggju stærstu borga Danmerkur með sjóflugvélinni verður ein flukkustund en flugið sjálft mun taka um 45 mínútur.

Sjóflugvélin í undirbúningsflugi í mars

Flogið verður fjórum sinnum á dag, klukkan 7:00, 10:00, 16:00 og 19:00 og mun flugmiðinn kosta um 36.000 krónur aðra leiðina og er í því innifalinn 6 kílóa farangur.

Innritunarhlið og brottfararstaður frá Kaupmannahöfn er frá Nordre Toldbod þaðan sem vatnastrætóin, Havnebussen, hefur viðkomu, rétt sunnan við Litlu Hafmeyjuna en í Árósum er brottför og komuhlið við Miljøhavnen við Østhavnsvej.

Flogið er með de Havilland Twin Otter sjóflugvél en sl. mánuði hefur vélinni verið flogið í tilraunaflugi sem hefur verið liður í að fá leyfi fyrir fluginu.

Vélin er í eigu Nordic Seaplanes en European Coastal Airlines mun annast flugrekstur en félagið hefur fimm slíkar flugvélar í flota sínum.

Farþegarými sjóflugvélarinnar









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga