flugfréttir
ACARS tilkynnti um reyk um borð 4 mínútum áður en samband rofnaði
- Fyrstu myndir af braki úr vélinni birtar
Reykur kom frá salerni og frá því svæði þar sem rafmagns- og tölvubúnaður vélarinnar er staðsettur
Birtar hafa verið fyrstu myndirnar af braki egypsku farþegaþotunnar sem m.a. sýna járnabrak með merki EgyptAir og í litum félagsins, auk björgunarvestis og leyfar af farangri.
Þá hafa fjölmiðlar í Egyptalandi greint frá því að kafarar séu búnir að koma auga á svörtu kassana úr flugi MS804 en það hefur þó ekki verið staðfest opinberlega.
Fram hafa komið heimildir sem sýna að ACARS-búnaður vélarinnar hafði sent frá sér upplýsingar
sem gaf til kynna reyk um borð en skilaboðin komu frá skynjurum framarlega í vélinni og þar á meðal
af salerni vélarinnar auk þess svæðis þar sem rafmagns- og tölvukerfi vélarinnar eru staðsett.
Upplýsingar úr ACARS vélarinnar skömmu áður en hún fórst
Skilaboðin í ACARS voru alls sjö sem komu á þriggja mínútna tímabili frá klukkan 00:26 til 00:29 að íslenskum tíma eða
um fjórum mínútum áður en samband rofnaði við vélina kl. 00:33.
ACARS stendur fyrir „Aircraft Communication Addressing and Reporting System“ en kerfið sendir reglulega skilaboð milli
flugvélarinnar og jarðstöðva með upplýsingar m.a. um ástand ýmissa kerfa um borð, skilaboð frá flugumferðarstjórn, frá
stjórnstöð flugfélagsins auk annarra skilaboða.
ACARS sendir viðvörunarskilaboð sjálfkrafa sem þýðir að ekki er enn vitað hvort að flugmenn vélarinnar vissu af reyknum
eða ekki.
Myndir af braki sem fundist hefur í sjónum sem tilheyrir flugi MS804
Nýjustu upplýsingar benda því til þess að reykur um borð gæti verið orsök þess að vélin fórst en sérfræðingar segja
of snemmt að segja til um hvort að eldur hafi komið upp eða hvort um hryðjuverk hafi verið að ræða.
Ein flugsérfræðingar sem hefur tjáð sig um málið í erlendum fjölmiðlum sagði m.a. að ósennilegt sé að sprengja hafi grandað
vélinni þar sem sú atburðarrás hefði ekki náð yfir þær 4 mínútur sem viðvörunarmerkin voru að berast frá ACARS
um reyk.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.