flugfréttir
Boeing opnar nýja vængjaverksmiðju fyrir Boeing 777X
Vængir fyrir Boeing 777X verður framleidd í nýja verksmiðjuhlutanum
Boeing hefur opnað nýja verksmiðjuálmu í Washington-fylki þar sem vængir fyrir nýju Boeing 777X vélarnar verða framleiddir.
Verksmiðjan, sem liggur að þeim verskmiðjum í Everett þar sem Boeing 777 vélarnar eru smíðaðar, er 110.000 fermetrar
að stærð og er því öll verksmiðjan því orðin á stærð við 20 fótboltavelli.
Fyrsta skóflustungan að verksmiðjunum var tekin í október árið 2014 en framkvæmdirnar kostuðu um 120 milljarða króna og
voru um 1.200 verktakar sem komu að framkvæmdunum.
Í nýju verksmiðjunni verða þrír stórir „autoclave“ hitaofnar sem verða 37 metrar á lengd en hver og einn vegur um 453 tonn
en þeir eru það stórir að hægt væri að koma fyrir í þeim búk af Boeing 737 flugvél.
Einn af þeim þremur „autoclave“ þrýstiofnum sem verið er að setja upp í verksmiðjunni
Boeing hefur fengið pantanir í 320 eintök af Boeing 777X frá sex viðskiptavinum en meðal þeirra sem hafa pantað
vélarnar eru Lufthansa, Etihad Airways, Cathay Pacific, Emirates, Qatar Airways, ANA (All Nippon Airways) auks
eins viðskiptavinar sem ekki er vitað hver er.
Framleiðsla á fyrstu Boeing 777X vélinni hefst á næsta ári en fyrsta eintak verður afhent árið 2020.
Nýja verksmiðjan er 110.000 fermetrar að stærð
Verksmiðjan, sem er hálftóm í dag, mun smátt og smátt fyllast af tækjum og tólum sem verða notuð við framleiðsluna
og fyrstu verkfræðingarnir hafa komið sér fyrir í skrifstofum sem eru agnarsmáar miðað við stærð byggingarinnar.
Risastórar ofnar þar sem vængirnir verða „bakaðir“
„Autoclave“ ofnanir eru engin smá smíði en þeir eru sívalir, í laginu eins og göng en í þeim verða vængir Boeing 777X
vélanna „bakaðir“ í miklum hita í bland við kælingu sem verður til þess að samsett efni vængjanna harðnar.
Í öðrum enda verksmiðjunnar er einangrað svæði, sem er laust við ryk og óhreinindi, en þar eru tvær risastórar sjálfvirkar vélar sem nefnast „Automated Fiber Placement“ sem munu koma til með að framleiða
trefjaþræði með því að vefja trefjablöndu sem mynda einingar sem notaðar verða í innviði á vængjum Boeing 777X vélanna.
Automated Fiber Placement vélarnar setja saman trefjaþræði fyrir vængina
Í stórum hluta verksmiðjunnar mun fara fram undirbúningsvinna fyrir trefjaeiningarnar áður en þær fara í þrýstiofnana, önnur
tæki munu sníða til einingarnar og bora fyrir festingum en þaðan verða fjórar megineiningarnar sendar í lokavængjasamsetningu
þar sem styrktarvírum og bitum verður komið fyrir.
Stórir róbótar munu sjá um að bora fyrir festingum en Boeing hefur þegar framkvæmt prófanir
á líkani af vængnum.
Hver vængur á Boeing 777X verður 33 metrar á lengd en vænghaf vélarinnar verður 71 metri sem er sjö metrum lengra
en núverandi vænghaf á Boeing 777 sem er 64 metrar.
Eric Lindblad, varaformaður yfir Boeing 777X deildinni, útskýrir fyrir blaðamönnum og gestum starfsemi verksmiðjunnar
Verið að koma fyrir tækjum og búnaði sem munu sjá um að bora fyrir festingum fyrir vængina
Yfirsýn yfir verksmiðjuplássið
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.