flugfréttir

Flugsýningunni næstu helgi aflýst

- Ekki veitt undanþága frá yfirvinnubanni flugumferðarstjóra

21. maí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 21:40

Frá flugsýningunni á Reykjavíkurflugvelli árið 2014

Flugsýningunni á Reykjavíkurflugvelli sem átti að fara fram næstkomandi laugardag, 28. maí, hefur verið aflýst.

Ástæða þess er að ekki fékkst undanþága frá yfirvinnubanni flugumferðarstjóra fyrir sýningardeginum en Flugmálafélag Íslands hefur unnið að undirbúningi sýningarinnar.

„Það breyttist bara og við fengum synjun“, segir Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélagsins, en upphaflega var mikil jákvæðni fyrir því að veita undanþágu svo hægt væri að halda flugsýninguna.

„Það er ekki hægt að vera með tæpan mannskap í flugumferðarstjórn“, segir Matthías en ekki er hægt að taka áhættu með einn flugumferðarstjóra á vakt ef eitthvað myndi út af bregða og hann gæti skyndilega ekki verið lengur á vakt.

Að sögn Matthías var allt á fullu með undirbúninginn og voru margir aðilar komnir langt með skipulagningu og er verið að fara yfir stöðuna og sjá hvernig málin þróast en ef bannið heldur áfram og verður áfram út sumarið þá verður útséð um að hægt væri að halda neina sýningu í sumar.

Flugsýningin á Reykjavíkurflugvelli fór seinast fram árið 2014 en hún féll einnig niður í fyrra en orsök þess var vegna veðurs.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga