flugfréttir
Töluðu við ATC í nokkrar mínútur fyrir slysið - Fóru fram á neyðarlækkun
- Rannsóknarnefnd undrast hversu fá skilaboð komu frá ACARS-búnaði
Mohamed Said Ali Shoukair var flugstjóri um borð í flugi MS804
Ekki hefur enn komið í ljós hvað grandaði EgyptAir farþegaþotunni sl. föstudag yfir Miðjarðarhafi en flak vélarinnar er enn ófundið.
Talið er að flugmennirnir hafi reynt að lækka flugið hið snartasta er stjórnklefi vélarinnar fylltist af reyk en samkvæmt heimildarmanni, sem tjáði
sig í dag við franska sjónvarpsstöð, þá hafði annar flugmaðurinn, sem talið er vera hinn 37 ára flugstjóri Mohamed Said Ali Shoukair, talað
við flugumferðarstjóra í nokkrar mínútur þar sem hann fór fram á að lækka flugið hið snarasta sökum neyðarástands vegna elds um borð.
Þetta stangast þó á við fyrri fregnir þar sem upphaflega var greint frá því að flugmenn vélarinnar höfðu ekki tilkynnt um að neitt amaði að
áður en samband rofnaði við vélina.
Þessar heimildir eru sagðar koma frá yfirmanni hjá flugmálayfirvöldum í Frakklandi en þetta hefur þó ekki verið staðfest af
flugslysasérfræðingum í rannsóknarnefndinni sem vinna nú að því að finna orsök slyssins.
Ef það reynist rétt að reykur hafi verið um borð í stjórnklefanum þá er talið að minni líkur séu á því að vélinni hafi verið grandað af hryðjuverkamönnum
þótt enn sé ekki búið að útiloka neinn möguleika.
Rannsóknarnefndin segir að í sambærilegum slysum hafi komið mun fleiri skilaboð frá ACARS
Þá kom fram í kvöld í fréttum vestanhafs að þeir flugslysasérfræðingar, sem koma að rannsókninni, séu ekki að ná að túlka skilaboðin
frá ACARS-búnaði vélarinnar sem sendi sjálfvirk skilaboð til jarðar þar sem kom fram m.a. að reyks hefði orðið vart á nokkrum stöðum
framarlega í vélinni.
Listinn yfir skilaboðin sjö sem komu frá ACARS
Samkvæmt upplýsingum frá aðilum sem eru kunnugir hvað fer fram innan rannsóknarnefndarinnar þessa stundina þá segja rannsakendur
að undir venjulegum kringumstæðum hefði listinn átt að innihalda mun fleiri viðvörunarskilaboð þar sem vélin fór af áætlaðri flugleið skömmu áður
en hún hrapaði.
Ef litið er til flugslysa sem hafa átt sér stað með svipuðum hætti þá hafa þær vélar sent frá sér mun fleiri skilaboð gegnum ACARS með fjölda
viðvörunarmerkja um eld um borð auka skilaboða frá fjölda annarra kerfa um borð í vélinni en aðeins sjö skilaboð komu frá flugi MS804.
Einhverjir telja að eldurinn gæti hafa eyðilagt leiðslur og snúrur frá ACARS-búnaðinum en aðrir flugslysasérfræðingar telja það frekar hæpið.
Sérfræðingar telja sennilegast að eldurinn hafi komið upp í rafmagnsrými vélarinnar en ef svo reynist rétt þá er talið undarlegt hvers vegna aðeins
komu sjö skilaboð frá ACARS þar sem rýmið heldur utan um viðkvæman tölvubúnað og rafmagnskerfis sem tengist stjórnkerfum vélarinnar og hefði vélin því átt að senda heilan lista af viðvörunarskilaboðum til jarðar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.