flugfréttir
Ryanair boðar til verðstríðs: Munu lækka fargjöld um allt að 12 prósent
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að félagið myndi léttilega vinna verðstríð
Umfangsmikil verðlækkun á fargjöldum er framundan hjá Ryanair sem lýst því yfir í dag að til stendur að lækka flugfargjöld um allt að 12 prósent.
Ryanair ætlar með þessu að boða til verðstríðs og auka samkeppnina við önnur flugfélög í Evrópu
en fargjöld munu lækka að meðaltali um 7% á næsta fjármála ári sem endar í mars árið 2017.
Að sögn Michael O´Leary, framkvæmdarstjóra Ryanair, munu fargjöld á sumrin lækka um 5 til 7% en
allt að 12 prósenta verðlækkun verður á veturnar.
O´Leary segir að óvissa í efnahagsmálum heimsins og hryðjuverkaógn eftir árásirnar í París í fyrra
hafi neytt flugfélög til þess að lækka fargjöld.
„Við ætlum að gera hvað sem er til þess að fylla vélarnar okkar betur. Ef það verður verðstríð
í Evrópu þá mun Ryanair vinna það stríð“, segir O´Leary en easyJet tilkynnti
einnig um verðlækkun fyrr í þessum mánuði.
Hagnaður Ryanair á seinasta fjármálaári var 172 milljarðar króna sem er 43% aukning frá því
í fyrra er hagnaður ársins nam 133 milljörðum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.