flugfréttir
Nýju Airbus A320neo vélarnar til vandræða hjá IndiGo
- Lengri ræsitíma í PW1100G hreyflum veldur seinkunum
Ein af þeim nýju Airbus A320neo sem IndiGo hefur fengið
Nýju Airbus A320neo vélarnar, sem hafa verið afhentar til indverska flugfélagsins IndiGo, eru farnar að valda seinkunum í áætlun félagsins vegna vandamála með PW1100G hreyfilsins sem framleiddur er af Pratt & Whitney.
Eins og áður hefur komið fram hefur Pratt & Whitney verið að vinna að vandamálinu en þrátt fyrir það
hefur það ekki haft áhrif á flughæfnisvottun vélanna en vandamálið varð til þess að Qatar Airways
vildi ekki taka við vélinni, fyrst allra flugfélaga, í desember í fyrra.
Vandamálið veldur því að lengri tími fer í að ræsa hreyfilinn vegna hættu á ofhitnun en það veldur
því að viðsnúningstími á flugvelli lengist um nokkrar mínútur.
IndoGo segist vera farið að súpa seiðið af því og á flugfélagið í basli við að láta vélarnar fara aftur í loftið
eftir lendingu á réttum tíma en það fer eftir hverjum fluglegg fyrir sig hvort seinkun verður.
Riyaz Peermohamed, fjármálastjóri IndiGo, segir að ræsitími hreyflanna seinki í sumum tilvikum um
tvær mínútur en honum hefur verið sagt að Pratt & Whitney séu á fullu að vinna í að leysa vandamálið.
IndiGo hefur tekið við fjórum Airbus A320neo vélum en félagið pantaði á sínum tíma hvorki meira
né minna en 430 eintök af nýju vélinni sem er arftaki Airbus A320.
Áreiðanleiki nýju vélanna fjögurra hjá IndiGo mælist 99.0% sem Peermohamed álítur vera nokkuð gott
en til samanburðar þá er áreiðanleiki þeirra 108 Airbus A320 véla í flota félagsins 99.9%.
Ný Airbus A320neo vél fyrir IndiGo er ein af þeim vélum sem hefur verið komið fyrir í tímabundna geymslu hjá Airbus í Toulouse
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.