flugfréttir
Fyrsta B-skoðun á Dreamliner-vél BA lokið
Fyrstu Boeing 787-8 vélinni ýtt úr viðhaldsskýli í Cardiff sl. fimmtudag
Fyrsta Dreamliner-vélin í flota British Airways hefur gengist undir sína fyrstu B-skoðun en vélin var afhent til British Airways í júní árið 2013.
Vélin, sem ber skráninguna G-ZBJB, er af gerðinni Boeing 787-8 en B-skoðun fer fram
á þriggja ára fresti og var því komin tími á fyrstu skoðunina.
Skoðunin hófst í fyrstu vikunni í maí hjá BAMC (British Airways Maintenance Cardiff) og stóð hún yfir í
12 daga en undirbúningur fyrir skoðunina hófst fyrir um ári síðan.
120 sérfræðingar, flugvirkjar auk öryggissérfræðinga voru þjálfaðir sérstaklega til að framkvæma
skoðun á Boeing 787 vélunum en Dreamliner-floti British Airways telur í dag 13 vélar, átta af gerðinni
Boeing 787-8 og fimm af gerðinni Boeing 787-9.
British Airways á en eftir að fá 29 Dreamliner-vélar afhentar af öllum gerðunum þremur, Boeing 787-8, -9 og -10.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.