flugfréttir
Þremur drónum flogið í veg fyrir þotu frá Lufthansa í aðflugi
Vélin var í aðflugi að Bilbao sl. laugardag þegar atvikið átti sér stað / Myndin er samsett
Litlu munaði að farþegaþota frá Lufthansa hefði orðið fyrir þremur fjarstýrðum flygildum er vélin var í aðflugi að flugvellinum á Bilbao á Spáni sl. laugardag.
Atvikið er talið það alvarlegasta á Spáni þar sem drónar eiga í hlut en vélin, sem var af gerðinni Airbus A320, var að koma
frá Frankfurt og þurftu flugmennirnir að bregðast skyndilega við og hætta við er þeir komu auga á þrjá dróna í aðflugslínunni.
Heiðskírt var í veðri er atvikið átti sér stað og náðu flugmennirnir fyrir tilviljun að koma auga á drónana þrjá er þeir voru í aðflugsferlinu sem er sá hluti flugsins sem krefst mestu einbeitingu.
Lögregluþyrla var ræst út skömmu eftir að flugmennirnir tilkynntu um atvikið til að finna drónanna en án árangurs og eru eigendur
þeirra enn ófundnir.
Lögreglan á Spáni rannsakar nú atvikið en ef viðkomandi aðilar finnast gætu þeir átt yfir höfði sér mjög háar sektir og jafnvel
fangelsisvist.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.