flugfréttir

Zhengzhou-leiðin hjá Cargolux rífur 100.000 tonna múrinn

15. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 16:26

Boeing 747-8 fraktflugvél Cargolux

Kínverska borgin Zhengzhou er orðin ein af stærstu fraktflugsáfangastöðum í leiðarkerfi Cargolux en fraktflugfélagið byrjaði að fljúga þangað fyrir tveimur árum síðan og er leiðin þegar búinn að rjúfa 100.000 tonna múrinn.

Aðeins eru 8 mánuðir síðan að flugleiðin milli Lúxemborg og Zhengzhou fór yfir 50 þúsund tonn af flugfrakt en flogið er þessa leið sjö sinnum í viku en Cargolux flýgur einnig til Zhengzhou frá Mílanó, Kuala Lumpur, Singapore og frá Chicago.

Frakflutningar um Xinzheng International flugvöllinn í Zhengzhou hafa aukist frá 85.800 tonnum árið 2010 upp í 403.000 tonn árið 2015 en flugvöllurinn er 17. stærsti flugvöllurinn í Kína.

Cargolux hefur unnið í nánu samstarfi við Henan Civil Aviation and Investments (HNCA) um að koma á fót öflugum frakflugrekstri í Zhengzhou og gera flugvöllinn að lykilflugvelli í vöruflutningaflugi í Kína.

Þá er gert ráð fyrir að nýstofnað dótturflugfélag, Cargolux China, verði komið í fullan rekstur árið 2017 en enn er beðið eftir að félagið fái fullt leyfi frá kínverskum flugmálayfirvöldum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga