flugfréttir
Síðasti séns að sjá „Ed Force One“ í kvöld
- Iron Maiden skilar TF-AAK sem fer í önnur verkefni hjá Air Atlanta
„Ed Force One“ mun fara í önnur verkefni
Núna er síðasta séns til að sjá „Ed Force One“ í litum Iron Maiden en júmbó-þota Air Atlanta Icelandic, TF-AAK, sem hefur verið á tónleikaferðalagi er núna á Keflavíkurflugvelli og mun fara í kvöld erlendis þar sem merkingarnar verða fjarlægðar af vélinni.
Júmbó-þotan lenti núna kl. 17:56 á Keflavíkurflugvelli eftir flug frá Marseille í Frakklandi en hún flaug þangað í gær með yfir 300 starfsmenn Air Atlanta
sem héldu utan til að horfa á leik Íslendinga og Ungverja á EM2016.
Vélinni hefur nú verið skilað til Air Atlanta en þungarokkhljómsveitin mun ekki nota vélina í Evróputúrnum í tónleikaferðalaginu „The Book
of Souls“ og mun tækjabúnaðurinn verða ferjaður milli borga með trukkum þess í stað.
Með „Ed Force One“ vélinni náði Iron Maiden að fara fljótt á milli helstu borga heims í mörgum heimsálfum en hljómsveitin þarf ekki á vélinni
að halda í Evrópu og var Gautaborg síðasti áfangastaðurinn með vélinni.
Fyrir Suðurnesjabúa, og þá sem eru á sunnudagsrúntinum suðurfrá, þá geta áhugasamir séð vélina á Austurhlaðinu og einnig fylgst með henni fara í loftið.
Fleiri myndir: Hægt er að smella á myndirnar til að sjá stærri útgáfur
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.