flugfréttir
Flugi Delta til Íslands snúið við til Kanada vegna þoku í Keflavík
- Snéri við og lenti í Goose Bay til að taka eldsneyti og skipta um áhöfn
Um 14 tíma seinkun varð á fluginu til Íslands vegna þoku sem varð til þess að vélin þurfti að fljúga til baka og taka meira eldsneyti og fá nýja áhöfn
Farþegaþota frá Delta Air Lines, sem var á leið til Keflavíkurflugvallar frá New York í gærmorgun, þurfti að snúa við til Ameríku vegna þoku í Keflavík en vélin lenti á Goose Bay í Kanada þar sem eldsneyti vélarinnar var á þrotum.
Vélin, sem er af gerðinni Boeing 757-200, var yfir Narsarsuaq á Grænlandi þegar hún snéri við aftur til Ameríku um klukkan
6:00 í gærmorgun en þá átti hún rúma klukkustund eftir til Keflavíkur.
Vélin flaug til baka í tvær klukkustundir og var ákveðið að lenda í Goose Bay á Labrador í Kanada þar sem lent var kl. 8:20
að íslenskum tíma en þá var klukkan 05:20 að nóttu að staðartíma.
Farþegar biðu í sex klukkustundir eftir að ný áhöfn yrði
send til Goose Bay til að fljúga þeim áfram til Íslands
Farþegi um borð sagði að vélin hefði lent í Goose Bay þar sem hún hafði ekki eldsneyti til að fljúga lengra eftir að hafa snúið
við en í yfirlýsingu frá Delta Air Lines segir að félagið hafi snúið við vegna versnandi veðurskilyrða á Íslandi með þokulofti.
Farþegar fengu veitingar í Goose Bay á meðan verið var að bíða eftir að önnur áhöfn yrði send til Labrador til að fljúga vélinni áfram. Þeir fengu ekki að fara úr flugvélinni þar sem flugvöllurinn í Goose Bay er herflugvöllur sem hefur ekki landamæraeftirlit né tollskoðun en þeir fengu þó að teygja aðeins úr sér og fá ferskt loft á flughlaðinu.
Einn farþeginn sagði að þeir hefðu ekki fengið að yfirgefa flugvélina í þessar sex klukkustundir en þeim bauðst m.a.
að fara út og standa í stigabílnum til að taka myndir yfir Happy Valley-Goose Bay flugvöllinn en einhverjir fengu að fara niðrá flughlað.
Delta Air Lines sendi í morgun stærri vél til Íslands þar sem flugáætlunin hafði raskast og fór Boeing 767 breiðþota
af stað í nótt frá Kennedy-flugvellinum sem lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun.
Ný áhöfn kom rétt fyrir hádegi til Goose Bay og leysti hina af sem var komin fram yfir leyfilegan vinnutíma og fór vélin í loftið skömmu síðar.
Vélin snéri við nálægt Narsarsuaq þegar um klukkustund var eftir að fluginu til Keflavíkur
Farþegar fengu aðeins að fara út og fá sér frískt loft
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.