flugfréttir
Emirates fær sína áttugustu A380
Áttugasta Airbus A380 þotan fyrir Emirates
Það styttist í að Airbus verði búið að afhenda 200 Airbus A380 risaþotur en Emirates fékk í vikunni sína áttugustu A380 afhenta.
Emirates á enn eftir að fá 62 eintök af risaþotunni þar til félagið hefur fengið allar þær vélar sem voru pantaðar en sú sem félagið fékk í vikunni er A380 númer 190 sem Airbus afhendir frá upphafi og á því aðeins eftir að afhenda 10 eintök upp í tvö hundruðustu vélina.
Emirates fékk áttugustu vélina afhenta í Vínarborg en vélin mun hefja áætlunarflug með vélinni frá austurrísku höfuðborginni þann 1. júlí.
Ein af hverjum fjórum þotum í flota Emirates er Airbus A380 risaþota en 38% flotans eru Boeing 777-300ER vélar, 8% flotans eru af gerðinni Boeing 777-200/LR/ER
og þá hefur félagið tíu Airbus A330 vélar fjórar af gerðinni A340.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.