flugfréttir
Nordic Aviation Capital kaupir nítján Embraer-þotur frá Delta
Embraer E-175 þoturnar nítján eru keyptar frá Delta Air Lines
Danska flugvélaleigan Nordic Aviation Capital hefur fest kaup á nítján Embraer-þotu frá Delta Air Lines.
Embraer-vélarnar eru af gerðinni Embraer E-190 en vélarnar voru hluti af samningi sem Delta gerði við Boeing er félagið ætlaði að panta tuttugu Boeing 737-900ER vélar
en Embraer-vélarnar hafði Boeing fengið frá Air Canada þegar flugfélagið kanadíska lagði inn pöntun í 61 Boeing 737 MAX vél.
Upphaflega ætlaði Delta að nota Embraer-vélarnar nítján en félagið hætti við þar sem það skipti um stefnu varðandi flotaáætlun sína.
Nordic Aviation Capital er stærsti eigandi í heimi af ATR skrúfuvélum og Bombardier þotum og er fyrirtækið stærsta flugvélaleiga á Norðurlöndunum með höfuðstöðvar
sínar í Billund á Jótlandi sem hefur yfir 300 flugvélar í sinni eigu.
Með vélunum nítján mun Embraer-floti Nordic Aviation Capital fara upp í 113 Embraer-vélar en fyrr í þessum mánuði festi NAC kaup á 25 Embraer-vélum af gerðinni E-175
og E-190 frá Air Lease flugvélaleigunni í Bandaríkjunum.
Nordic Aviation Capital hefur einblítt í meira mæli á að taka inn minni þotur í stað skrúfuvéla þar sem fyrirtækið sér fram á aukna eftirspurn eftir slíkum
vélum.
Um fimmtíu flugfélög í 35 löndum hafa flugvélar sem eru leigðar frá Nordic Aviation Capital en meðal viðskiptavina eru Air Canada, British Airways, LOT Polish Airlines, Azul,
Airberlin, Flybe, airBaltic, Widerøe, JetTime, Etihad Regional, Binter Canarias auk fleiri félaga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.