flugfréttir

Uganda Airlines gæti flogið á ný

- Forseti Úganda krefst þess að landið fái aftur sitt eigið flugfélag

24. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 18:04

Uganda Airlines hafði m.a. Boeing 707 vélar í flota sínum

Svo gæti farið að Uganda Airlines muni fljúga á ný en flugfélagið, sem var ríkisflugfélag Úganda, hætti starfsemi sinni árið 2001 en það hafði þá verið starfrækt í 23 ár frá stofnun þess árið 1976.

Forseti landsins, Yoweri Museveni, sagði í gær á ræðu sinni að það væri mikil skömm að því að Úganda hefði ekki ríkisflugfélag lengur og hefur hann falið samgönguráðherra landsins að setja saman nefnd til að vinna að því að koma upp nýju flugfélagi.

Museveni segir að ferðamannaiðnaðurinn hafi virkilega fengið að kenna á því að landið sé ekki með ríkisflugfélag og gæti landið verið að hala inn mun meiri tekjum af ferðamönnum ef það hefði sitt eigið flugfélag.

Uganda Airlines varð gjaldþrota árið 2001 en skuldir félagsins voru orðnar verulegar en hluthafar kenndu stjórnvöldum í Úganda um að hafa drepið rekstur félagsins.

Boeing 707 þota Uganda Airlines á Stansted-flugvellinum í London árið 1976

Margir aðilar telja þó að það gæti reynst erfitt að stofna nýtt flugfélag þar sem samkeppnin við flugfélög á borð við Kenya Airways yrði án efa erfið auk þess sem Úganda telst sem lágstéttarland.

Fyrrum samgönguráðherra Úganda, Stephen Chebrot, sagði nýlega að ríkisstjórn landsins hefði ráðið matsfyrirtækið Ernst & Young til að meta hagkvæmni þess að stofna nýtt flugfélag eða koma Uganda Airlines aftur á flot og nefndi hann að yfirvöld eru nú þegar að íhuga að setja 37 milljarða króna í nýtt ríkisflugfélag.

Þá sé verið að laða að fjárfesta með því að lofa þeim að fá frí landsvæði fyrir fjárfestingar auk undanþágu fyrir skattgreiðslum.

Entebbe International flugvöllurinn er stærsti flugvöllur Úganda, staðsettur í Kampala, höfuðborg landsins, en meðal þeirra flugfélaga sem fljúga til Úganda eru Brussels Airlines, EgyptAir, Emirates, Ethiopian Airlines, Etihad Airways, flyduba, Kenya Airways, KLM, Qatar Airways, South African og Turkish Airlines.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga