flugfréttir

Boeing 727 í góðu ástandi bjargað af flugsafni í Missouri

- N874AA er í góðu ástandi - Museum of Flight ætlaði að rífa vélina

24. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 23:08

N874AA var afhent ný til American Airlines árið 1978

Airline History Museum flugsafnið í Kansas City í Missouri mun fá gamla farþegaþotu af gerðinni Boeing 727 í safnið hjá sér síðar í sumar sem annars hefði átt að rífa niður en vélin flaug alla sína tíð hjá American Airlines og er nánast í fullkomnu ásigkomulagi.

Boeing 727 vélin hefur skráninguna N874AA og var hún smíðuð árið 1978 og flaug fyrir American Airlines í 25 ár eða þar til hún var tekin úr notkun árið 2003.

Vélin hefur síðan staðið við Museum of Flight í Seattle en flugsafnið hefur ekki pláss fyrir vélina og þar að auki er búið að eyða mörgum árum í að gera upp aðra Boeing 727 þotu sem er sú fyrsta sem smíðuð var hjá Boeing sem er nú þegar á safninu.

Boeing 727 vélin hefur staðið í Seattle í 13 ár

Þegar Airlines History Museum flugsafnið frétti að til stæði að rífa vélina niður þá var haft samband við Musem of Flight en að vélin er í mjög góðu ástandi þrátt fyrir að hafa staðið í 13 ár.

„Það er búið að ræsa alla hreyflana þrjá og þeir gengu snuðrulaust án athugasemda“, segir John Roper hjá Airlines History Museum. - „Öll stjórntækin virka þannig að við erum að stefna að ferjuflug geti hafist til Kansas City fljótlega“, segir Roper.

Þegar vélin kemur til Missouri verður vélin sett á safnið þar sem hún verður notuð sem sýningarvél í þágu flugvísinda, tækni og flugvirkjunar auk þess sem hún verður hluti af verkefni sem miðast af því að hvetja ungt fólk til að fá áhuga á flugi.

Roper mun fara til Seattle í júlí til að fylgjast með því er mikið afl verður sett á hreyflana á vélinni auk þess sem prófanir verða gerðar á hjólabúnaði.

Airlines History Museum flugsafnið er að reyna að hafa uppi á einhverri áhöfn sem flaug vélinni til að bjóða þeim að sjá vélina bæði í Seattle og í Kansas en þessa dagana fer fram mikil pappírsvinna sem þarf að vera lokið áður en leyfi fæst til að fljúga vélinni.

„Það þarf að gera nokkrar flugprófanir í Seattle áður en ferjuflugið mun eiga sér stað“, segir Roper.

Flest flugfélög láta fjarlægja allt úr vélunum eftir að þær eru teknar úr notkun - „Á þessari þá var það ekki gert. Innréttingin í henni er þarna ennþá, sætin og meira að segja kaffikönnurnar og matvagnarnir“.

Boeing 727 vélin á Museum of Flight







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga