flugfréttir

Southwest frestar afhendingum á 67 Boeing 737 MAX vélum um sex ár

25. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:33

Ein af þeim Boeing 737 MAX vélum sem búið er að framleiða fyrir Southwest Airlines

Southwest Airlines hefur ákveðið að fresta því að taka á móti 67 eintökum af Boeing 737 MAX 8 vélunum um allt að sex ár en um er að ræða þriðjung af þeim tvö hundruð Boeing 737 MAX vélum sem félagið pantaði.

Vélarnar 67 verða því afhentar frá árinu 2023 til 2025 í stað 2017 til 2019 en þessi yfirlýsing hefur vakið upp efasemdir meðal fjárfesta auk þess sem þetta gefur upp aðra mynd af eftirspurn eftir Boeing 737 MAX vélunum og óttast sumir markaðssérfræðingar að önnur flugfélög gætu fylgt í kjölfarið og frestað pöntunum sínum.

Southwest Airlines segir að rekstrarumhverfið sé mjög krefjandi eins og staðan er í dag en þetta breytir þó ekki því að Southwest Airlines mun taka við Boeing 737 MAX vélunum fyrst allra flugfélaga á næsta ári.

Southwest Airlines tilkynnti fyrir skömmu að félagið ætlaði sér að taka klassísku Boeing 737 vélarnar (Boeing 737-500 og -300) fyrr úr umferð en áætlað var og hætta með þær árið 2018 en búið er að flýta því til haustsins 2017.

Robert Stallard, markaðssérfræðingur hjá RBC Capital Markets, segir að það að Southwest Airlines ætli sér að hætta með Boeing 737-300 og -500 vélarnar fyrr bendi til þess að stefna félagsins um að fljúga eldri vélum í ljósi lágs verðs á þotueldsneyti sé á enda þar sem verð á olíu sé byrjað að hækka aftur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga