flugfréttir

Volga-Dnepr fær leyfi til viðhaldsleyfi fyrir Sukhoi Superjet 100

26. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 19:54

Viðhaldsskýli Volga-Dnepr Tachnics

Viðhaldsfyrirtækið Volga-Dnepr Technics í Moskvu (VDTM) er orðið viðurkennd viðgerðar- og viðhaldsmiðstöð fyrir Sukhoi Superjet 100 þotuna.

Volga-Dnepr Technics mun því geta tekið að sér að sjá um „line maintenanc“, viðgerðir og prófanir á Sukoi Superjet 100 þotunni á Sheremetyevo-flugvellinum í Moskvu.

VDTM segir að það hafi aðeins verið tímaspursmál hvenær fyrirtækið hefði fengið vottun til þess að hefja viðhald og viðgerðir á Sukhoi Superjet 100 þar sem þotan er að verða mjög vinsæl í Rússlandi, Austur-Evrópu, í Asíu auk Suður-Ameríku.

Volga-Dnepr Technics hefur nú leyfi á borð við EASA Part-145 og Part-147, Bermuda OTAR-145,. OTAR-39 Subpart F og sér fyrirtækið um viðgerðir og viðhaldsskoðanir á borð við Boeing 737, Boeing 747-200/300/400 og -8 auk Airbus A320 véla.

Hingað til hafa verið sjö fyrirtæki sem hafa haft leyfi til að framkvæma viðhaldsviðgerðir á Sukhoi Superjet 100 þotunni en Volga-Dnepr er það áttunda.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga