flugfréttir

Vængur á Boeing 777-300ER frá Singapore varð alelda eftir lendingu

- Var komin þrjá tíma áleiðis til Mílanó þegar upp kom olíuleki

27. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 03:35

Ljósmynd sem einn farþegi tók út um gluggann skömmu eftir lendingu í Singapore

Eldur kom upp í hreyfli á farþegaþotu af gerðinni Boeing 777-300ER frá Singapore Airlines skömmu eftir að vélin lenti á Changi-flugvellinum í Singapore en véliin hafði snúið við yfir Indlandshafi í kjölfar bilunar.

Vélin fór í loftið frá Changi-flugvellinum í gærkvöldi klukkan 18:05 að íslenskum tíma áleiðis til Mílanó á Ítalíu en þegar vélin hafði verið á lofti í 3 klukkustundir kom viðvörunarljós um olíuleka í öðrum hreyfli vélarinnar og ákváðu flugmennirnir að því að snúa við en þá var vélin yfir Andaman-eyjum í Indlandshafi.

Einn farþegi um borð sagðist hafa orðið var við lykt af bensíni þegar vélin var komin um tvær og hálfa klukkustund áleiðis en flugstjórinn hafði tilkynnt farþegum að nauðsynlegt væri að snúa við vegna olíuleka.

Slökkvistarf tók aðeins 10 mínútur

Vélin lenti heil á höldnu í Singapore klukkan 22:45 í gærkvöldi að íslenskum tíma en skömmu eftir að vélin lenti kom upp eldur í hreyflinum sem breyddist út um allan væng vélarinnar.

222 farþegar voru um borð í vélinni og nítján manna áhöfn og var vélin rýmt eftir að búið var að slökkva eldinn en slökkvilið mætti á staðinn um þrjár mínútur eftir lendingu og tók um tíu mínútur að ráða niðurlögum eldsins.

Hægri vængur vélarinnar er gjörónýtur eins og sést á meðfylgjandi myndum en flestir farþeganna voru mjög rólegir að sögn þeirra sem fjölmiðlar ræddu við og yfirgáfu allir vélina með stigabílum og var farþegum ekið í rútum að flugstöðinni.

„Eftir að vélin lenti í Singapore fögnuðu allir og klöppuðu en á sama augnarbliki sáust neistar og svo blossaði upp mikill eldur og allur vængurinn varð alelda“, segir ein kona sem var farþegi um borð í vélinni.

Vængur vélarinnar eftir að búið var að slökkva eldinn

Ekki er vitað til þess að nein meiðsl hafi orðið á farþegum eða áhöfn en orsök atviksins eru enn óljós og stendur rannsókn yfir.

Singapore Airlines er eitt öruggasta flugfélag í heimi en aðeins er eitt flugslys skráð er varðar flugfélagið sem átti sér stað þann 31. október árið 2000 er júmbó-þota af gerðinni Boeing 747-400 fór í flugtak á rangri flugbraut sem var lokuð vegna framkvæmda á flugvellinum í Taipei og hafnaði á vinnuvélum í flugtaksbruninu sem búið var að leggja á brautinni en slysið kostaði 83 manns lífið af þeim 179 sem voru um borð í vélinni.



Vélin var nýlent þegar eldur kom upp í hreyflinum og breiddist hann mjög hratt úr eftir vængnum



Farþegar héldu flestir ró sinni



Myndband:



Annað myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga