flugfréttir

Norwegian tekur á leigu þrjár Fokker 100 þotur

27. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:27

Fokker 100 vélarnar þrjár eru leigðar frá Denim Air, Avantiair og Carpatair

Norska flugfélagið Norwegian Air Shuttle hefur gert samning við þrjá mismunandi flugrekstraraðila sem allir munu leigja félaginu eina Fokker 100 yfir sumarið en vélarnar þrjár munu fljúga til þriggja mismunandi áfangastaða innanlandsflugi í Noregi.

Vélarnar eru teknar á leigu frá Demin Air, sem er nú í eigu grænlenska kaupsýslumannsins, Gert Brask, og verður sú vél notuð í flugi frá Osló til Þrándheims. Ein Fokker 100 frá þýska flugfélaginu Avantiair verður notuð í flugi frá Osló til Bergen og frá Osló til Stavanger verður notuð Fokker 100 vél frá rúmenska flugfélaginu Carpatair.

Sagt er að ástæða þessa sé vegna minnkandi eftirspurnar á þessum flugleiðum og hafi því verið ákveðið að nota minni vélar með færri sætum en talsmaður Norwegian segir þær sögusagnir rangar og sé aðeins verið að hagræða leiðarkerfinu í júlí.

Fokker 100 vél Denim Air, sem nú er í eigu grænlendingsins, Gert Brask, á flugvellinum í Cork á Írlandi fyrr í mánuðinum

Meðalaldur flugflota Norwegian mun hækka eitthvað í júlí þar sem Fokker 100 vélarnar eru vel yfir 20 ára gamlar en framleiðslu á Fokker-vélum var hætt árið 1997.

Fjögur flugfélög leigja einnig vélar sínar til Norwegian í sumar í millilandaflugi

Fyrir utan leiguna á Fokker 100 vélunum þá hefur Norwegian einnig gengið frá leigusamningi við fjögur flugfélög um millalandaleiguflug í sumar en félagið hefur nú þegar eina Airbus A320 frá British Airways sem hefur verið að fljúga fyrir félagið auk vélar frá litháenska flugfélaginu, DOT LT, sem er dótturfélag Danish Air Transport (DAT), en þær vélar hafa verið notaðar í flugi til Alicante og Barcelona.

Þá mun Norwegian Air Shuttle leigja eina Boeing 737-800 vél frá Slovak Air Exlpore sem verður notuð fram til enda september í flugi milli Madrídar og Kaupmannahafnar og milli Malaga og Bergen og þá hafði Norwegian einnig tekið á leigu eina Boeing 737 frá ítalska flugfélaginu NEOS sem flaug fyrir félagið fyrstu 10 dagana í júní.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga