flugfréttir
Erlendir aðilar gætu fengið að stofna flugfélög í Brasilíu
Frá Congonhas-flugvellinum í Sao Paulo
Brasilía ætlar að feta í fótspor Indverja og leyfa erlendum fyrirtækjum og fjárfestum að kaupa allt að 100 prósenta hlut í brasilískum flugfélögum auk þess sem þeir gætu fengið að stofna flugfélög í landinu.
Neðri þingdeild Brasilíu tók málið fyrir á dögunum og var tillagan samþykkt með 199 atkvæðum gegn 71 atkvæði en upphaflega gátu erlendir aðilar ekki átt
eiga meiri hlut í brasilískum flugfélögum en sem nemur 20% en síðar var hlutfallið aukið í 49 prósent.
Ef efri deild brasilíska þingsins samþykkur tillöguna mun það verða til þess að erlend flugfélög munu hefja innanlandsflug í Brasilíu sem myndi
koma brasilískum flugfarþegum til góða en það gæti sett strik í rekstur meðal brasilískra flugfélaga á borð við GOL Linhas Aéreas.
Ryanair hefur meðal annars átt í viðræðum við stjórnvöld helstu landa Suður-Ameríku um mögulegt innanlandsflug í álfunni en lágfargjaldafélagið írska
hefur samt sem áður ekki áhuga á að stofna flugfélag í Brasilíu vegna spillingar í landinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.