flugfréttir
EgyptAir: Náðu ekki gögnum úr svörtu kössunum - Verða sendir til Parísar
Aflestrarbúnaður á flugrita til að ná upplýsingum frá svarta kassanum
Ekki náðist að hlaða niður gögnum úr svörtu kössum egypsku Airbus A320 þotunnar frá EgyptAir sem fórst yfir Miðjarðarhafi.
Minnishylkin úr flugrita og hljóðrita flugvélarinnar fundust um miðjan mánuðinn og voru þeir sendir til Egyptalands þar sem flugslysasérfræðingar og tækniteymi hefur
unnið að því að reyna ná gögnum úr þeim en búnaðurinn er mjög illa farinn og þá m.a. vegna seltu sjávar sem komst að rafrásarborðinu.
Rannsóknarnefndin hefur ákveðið að senda svörtu kassana til frönsku flugslysarannsóknarnefndarinnar, (BEA - Bureau d´Enquetes et d´Analyses pour la Sécurité de l´Aviation Civile), í París.
Vonast er til þess að tækniteymi BEA takist að hreinsa flugritann og hljóðritann og laga skemmdirnar en ef það tekst verður búnaðurinn sendur
aftur til baka til Egyptalands þar sem rannsóknarnefndin mun halda störfum sínum áfram.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.