flugfréttir
Fyrsta Airbus A330neo fer í lokasamsetningu í október
Tölvugerð mynd af Airbus A330neo
Á meðan Airbus A350 og Airbus A320neo hafa fengið alla athyglina af þróun mála á nýjum farþegþotum frá Airbus þá hefur minna farið fyrir A330neo sem væntanleg er á markaðinn sem arftaki Airbus A330 vélanna.
Airbus A330neo mun fara í lokasamsetningu í október í haust en fyrsta tegundin sem framleidd verður er Airbus A330-900 sem mun koma á markaðinn
fyrir lok ársins 2017 sem mun leysa af hólmi Airbus A330-300 en A330-200 verður leyst af hólmi með Airbus A330-800.
Airbus er komið vel á veg með að framleiða íhluti í A330neo vélina og nýlega var lokið við að smíða fyrsta vænginn í verksmiðjunum í Brighton á Englandi
sem er sá hluti vélarinnar sem mun breytast mest en vænghafið mun aukast um 4 metra á arftakanum og þá verður vængurinn sterkari þar
sem nýir og sparneytnari hreyflar verða þyngri en núverandi hreyflar á Airbus A330 og þá er einnig búið að endurhanna það svæði þar sem vængirnir festast við
skrokkinn.
Fyrsti vængurinn fyrir Airbus A330neo í verksmiðjunum í Brighton á Englandi
Á sama tíma er verið að smíða fyrsta nefhlutann utan um stjórnklefa vélarinnar í Saint-Nazaire í Frakklandi en nefhlutinn og vængirnir í Brighton verða
ferjaðir til Toulouse síðar í sumar til samsetningar en næsta eintak af Airbus A330neo fer í lokasamsetningu strax viku síðar í október.
Fyrsta tilraunaflugið mun eiga sér stað næsta vor en fyrsta vélin verður afhent til TAP Portugal fyrir lok ársins 2017 en Airbus hefur fengið pantanir í 186 eintök af Airbus A330neo vélinni, tíu pantanir í A330-800 og 176 eintök hafa verið pöntuð af Airbus A330-900.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.