flugfréttir
Eurocockpit gefur út gagnkvæmt kort með skráðum drónaatvikum
Drónar hafa verið vaxandi vandamál í kringum flugvelli út um allan heim
Evrópsku flugmannasamtökin (European Cockpit Association) hafa ákveðið að taka málin í sínar hendur í baráttunni við dróna með nýrri vefsíðu þar sem búið er að kortleggja öll þau atvik sem hafa átt sér stað þar sem flugmenn hafa tilkynnt um tilvik þar sem fjarstýrðum flygildum var flogið í veg fyrir þá.
Drónar hafa notið mikilla vinsælda og eykst drónaeign um allan heim á hverju ári en þeim fylgir einnig hærri tíðni á atvikum þar
sem þeim er flogið nálægt flugvélum en 650 slík atvik voru t.a.m. skráð í Bandaríkjunum í fyrra sem er helmingi fleiri atvik en skráð voru árið 2014.
Eurocockpit samtökin segja að notast verður við „hashtagið“ #DroneIncident á samfélagsmiðlum í tengslum við slík
atvik til að vekja athygli á þeirri hættu sem drónar geta skapað ef þeim er flogið nálægt flugvélum.
Á þessari vefsíðu má sjá gagnkvæmt kort þar sem búið er að kortleggja þau atvik sem vitað er um með nánari upplýsingum.
Vakin skal athylgi á því að listinn á kortinu er ekki tæmandi og er aðeins um að ræða brot af þeim tilvikum sem skráð hafa verið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.