flugfréttir

Fyrsta farþegaþota Kínverja flýgur sitt fyrsta áætlunarflug

28. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 23:02

Fyrsta áætlunarflugið með ARJ21 var frá Chengdu til Shanghai

Í dag hóf sig á loft ný tegund af farþegaþotu í áætlunarflugi sem flaug í fyrsta sinn með farþega en ARJ21 þotan er afrakstur farþegaþotusmíði sem staðið hefur yfir í 14 ár í Kína.

Kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC setti ARJ21 þotuna á teikniborðið árið 2002 og stóð til að hún myndi fljúga sitt fyrsta flug árið 2005 og áætlunarflug árið 2007 en 8 ára seinkun varð hinsvegar á áætluninni þar sem skortur var á verkfræðingum með nægilega sterka kunnáttu til að halda áfram með verkefnið.

ARJ stendur fyrir „Advanced Regional Jet“ en þotan minnir einna helst á DC-9 með vænglinga „winglets“ og tekur hún 78 farþega á einu farrými.

ARJ21 þotunni fagnað

Chengdu Airlines er fyrsta flugfélagið til að fljúga þotunni með farþega en í dag var fyrsta áætlunarflugið flogið frá Chengdu til Shanghai í Kína en um borð voru 70 farþegar og tók flugið tvær klukkustundir og 12 mínútur.

COMAC flugvélaframleiðandinn segir að í dag hafi verið brotið blað í sögu flugvélasmíði í Kína og hafi kínversk lofthelgi tekið fagnandi hendi á móti fyrstu farþegaþotunni sem smíðuð er í Kína en vélinni er ætlað að keppa við þotur frá Embraer og Bombardier.

Jin Zhuanglong, forstjóri COMAC, segir að á næstunni verði haldið áfram að þróa vélina og hefja markaðssetningu á henni erlendis.

ARJ-21 þotan er ekki sú eina sem COMAC er að framleiða því C919 þotan mun fljúga sitt fyrsta flug á þessu ári en hún er stærri vél sem er ætlað að etja kappi við Boeing 737 og Airbus A320.











































  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga