flugfréttir

FAA leyfir notkun flugskýla fyrir óflugtengda starfsemi

- En þó háð skilyrðum

29. júní 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:28

Lítil flugvél í flugskýli í Bandaríkjunum

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið út nýja reglugerð er varðar notkun á flugskýlum á þeim flugvöllum sem fá styrki frá bandarískum stjórnvöldum.

Reglugerðin varðar notkun á flugskýlum sem tengist ekki fluginu en mjög algengt er vestanhafs að flugskýli séu nýtt sem geymslur fyrir ýmsa hluti sem tengjast ekki fluginu á borð við gasgrill, hjólhýsi, bíla, báta, húsgögn, ísskápa og aðra muni.

FAA gaf árið 2014 út tilkynningu þar sem flugrekstraraðilum var bent á að flugskýli sé ekki geymslur og væri tilgangur þeirra aðeins sá að hýsa flugvélar, flugtengda hluti og starfsemi sem tengist flugi.

FAA tók fram fyrir tveimur árum að eftirlitsmenn hafa reglulega gert úttekt á hvernig rými í flugskýlum er háttað og sé of algengt að verið sé að nota rými í allt öðrum tilgangi sem kemur í veg fyrir að eigendur flugvéla geti geymt flugvélar sínar innandyra en langur biðlisti er eftir plássi í flugskýlum í Bandaríkjunum.

Bílar geymdir í flugskýli

Mikil óánægja ríkti með þessa yfirlýsingu og bárust flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum yfir 2.400 ábendingar og kvartanir sem virðist hafa hreyft við FAA sem hefur ákveðið að leyfa í sumum tilvikum að nota flugskýli sem geymslur fyrir aðra muni en þá sem tengjast flugi.

FAA segir að á þeim flugvöllum þar sem ekki er skortur á plássi fyrir geymslu á flugvélum megi t.a.m. leigja út rými í flugskýlum með því skilyrði að flugrekstraraðilar og eigendur flugvéla sjái til þess að það sé pláss til staðar ef þörf er hverju sinni.

FAA segir að leyfilegt sé fyrir flugvöll að drýgja tekjurnar með því að leigja út geymslurými þegar styrkur frá yfirvöldum nægir ekki fyrir rekstarkostnaði og verði viðkomandi flugvöllur að sækja fyrst um leyfi áður en flugskýli sé notað í öðrum tilgangi en að hýsa flugvélar eða starfsemi er varðar flugið.

Reglugerðin tekur í gildi frá og með 1. júlí árið 2017 og kemur fram að nauðsynlegt sé að hægt sé að rýma pláss í flugskýli á 30 dögum ef þörf er til þess að nýta rýmið fyrir flugtenda starfsemi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga