flugfréttir
Boeing 757 vél Icelandair tekur lágflug yfir miðbæinn
Vél kom til landsins rétt fyrir klukkan sex í kvöld með íslenska karlalandsliðið í fótbolta
Það hefur varla farið framhjá neinum að landsliðið í fótbolta kom heim seinnipartinn í dag af Evrópumótinu í fótbolta í Frakklandi.
Boeing 757-200 vél Icelandair, „Grábrók“ (TF-ISV) tók lágflug yfir miðborgina með landsliðið eftir flug frá Lyon í Frakklandi en vélin
lenti á Keflavíkurflugvelli um sexleytið í kvöld.
Hér má sjá stuttmyndband af lágfluginu en vélin kom yfir höfuðborgarsvæðið úr suðaustri yfir Elliðavatn og flaug yfir Breiðholt, Fossvog, Reykjavíkurflugvöll
og tók þaðan beygjuna til norðurs yfir miðbæinn og snéri við og tók annað lágflug í 900 feta hæða áður en
hún hélt til Keflavíkur þar sem hún lenti á braut 29 skömmu síðar.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.