flugfréttir
Nýtt flugfélag ætlar að gefa helming af gróða sínum til góðgerðarmála
- Sprotaflugfélag ætlar að styðja við uppbyggingu í löndum þriðja heimsins
Tölvugerð mynd af Airbus A330-300 þotu POP
Nýtt flugfélag er nú í burðarliðnum í Bretlandi sem leitar að fjárfestum en hið nýja flugfélag ætlar sér þó að vera frekar öðruvísi en önnur flugfélög þar sem stefna þess er frekar óvenjuleg.
Flugfélagið, sem heitir POP (People Over Profit), ætlar sér að gefa a.m.k. 51% af gróðanum til góðgerðarmála bæði
til samtaka í Bretland og á Indlandi þegar það hefur flugrekstur.
„Mitt markmið er að stofna flugfélag, sem ólíkt öðrum flugfélögum, mun styðja við þau samfélög sem það mun fljúga til“, segir
Navdip Singh Judge, forstjóri POP, en flugfélagið mun fljúga milli Bretlands og Indlands auk þess sem áætlað er
að fljúga til þróunnarlanda í Suður-Asíu og til landa þriðja heimsins í Afríku.
POP stefnir á að hefja flug frá Standsted til Indlands
POP mun bjóða upp á svokallaðan Gullpassa („Gold Pass“) en þeir farþegar munu fá fría máltið, auka fótaplass, frítt
þráðlaust net, auka farangursheimild og ótakmarkaða breytingu á miðum.
Fyrstu 10.000 farþegarnir sem kaupa sér gullpassann munu fá hann á 80.000 krónur og munu þeir fá aðra leiðina fría
til Indlands en allir handhafar passans munu fá heimild fyrir þremur ferðatöskum.
POP mun hefja flugrekstur með einni Airbus A330-300 þotu sem mun hefja flug frá Stansted-flugvelli til indversku borganna
Amritsar og Ahmedabad frá og með haustinu ef allt gengur samkvæmt áætlun.
Á vefsíðu flugfélagsins, www.flypop.co.uk, kemur fram að á meðan flest flugfélög láta 1 til 2% af hagnaði renna
til góðra málefna þá ætlar POP að láta a.m.k. 51 prósent renna til góðgerðarmála með því markmiði að breyta lífsgæðum
fólks í þeim löndum sem það flýgur til.
Hagnaður félagsins mun styðja við fátækt og uppbyggingu í þeim löndum sem félagið mun fljúga til
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.