flugfréttir

Norwegian breytir pöntun í 30 Airbus A321neo yfir í A321LR

14. júlí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 14:11

Tölvugerð mynd af Airbus A321LR í litum Norwegian

Norwegian lagði í morgun inn pöntun til Airbus á Farnborough-flugsýningunni í 30 Airbus A321LR þotur sem er langdræg útgáfa af Airbus A321neo vélinni.

Pöntunin kemur í staðinn fyrir þær þrjátíu Airbus A321neo vélar sem Norwegian pantaði árið 2012 þegar félagið lagði inn pöntun í alls 100 þotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni.

Bjorn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian, segir að vélin passi mjög vel inn í reksturinn sem er sífellt að stækka og henti þotan mjög vel langtímaáætlunum félagsins.

„Við erum ánægðir að Norwegian hafi valið Airbus A321LR, sem er sú þota sem hefur hvað lengsta flugþol í heimi með einum gangi“, segir John Leahy, sölustjóri Airbus.

Airbus A321LR er „neo-vél“ var fyrst kynnt til leiks í janúar árið 2015 sem Airbus A321neoLR en Airbus segir að þetta sé þotan sem fylli í það skarð sem Boeing 757 skildi eftir sig þegar framleiðslu á henni var hætt árið 2004 en margir vilja meina að A321neoLR sé ekki að ná sömu eiginleikum og Boeing 757.

Airbus A321LR mun hafa flugþol upp á 7,400 km og getur tekið 220 farþega en Boeing 757-200 hefur flugþol upp á 7,600 kílómetra með vænglingum og tekur mest 239 farþega í einu farrými.

Norwegian mun fá fyrstu Airbus A321LR þotuna afhenta árið 2019 en flugfélagið norska hefur bæði pantað Airbus A320neo vélar og Boeing 737 MAX.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga