flugfréttir

Tvö ár frá því flug MH17 fórst í Úkraínu

17. júlí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 18:55

Íbúar frá úkraínska bænum Petropavlivka vottuðu fórnarlömbum virðingu sína í dag á torgi í bænum með kertum og blómum en skammt undan er sá staður þar sem malasíska farþegaþotan

Tvö ár eru liðin í dag frá því farþegaþota af gerðinni Boeing 777-200ER frá Malaysia Airlines fórst yfir Úkraínu eftir að hafa verið skotin niður með flugskeyti af jörðu niðri með þeim afleiðingum að allir þeir 298, sem voru um borð, létu lífið.

Vélin var yfir austurhluta Úkraínu þann 17. júlí árið 2014, á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur, þegar hún hvarf af ratsjá en brak út vélinni fannst á víð og dreif nálægt bænum Hrabove.

Tugi bæjarbúa fóru í dag og vottuðu virðingu sína með því að leggja blóm og kerti á torgið í bænum Petropavlivka auk þess sem börn settu pappírsskutlur á jörðina.

Braki úr vélinni var púslað saman í Amsterdam af
flugslysasérfræðingur

Bæjarbúar í Petropavlivka eru ennþá í dag að finna leifar og brak úr malasísku flugvélinni í skóglendi nálægt staðnum en svæðið er enn undir stjórn rússneskra aðskilnaðarsinna.

Atburðurinn var annar harmleikurinn í sögu Malaysia Airlines og kom aðeins fjórum mánuðum eftir að malasíska farþegaþotan, flug MH370, hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking en sú vél hefur enn ekki komið í leitirnar.

Lokaskýrsla flugslyssins var birt sl. haust en sakamálarannsókn hefur nú staðið yfir og tilkynnti samgönguráðherra Malasíu í gær, 16. júlí, að von sé að lokaskýrslu úr réttarrannsókn síðar á þessu ári og jafvel í haust.

Vonast er til þess að með þeirri skýrslu verði hægt að draga þá til saka sem bera ábyrgð á því að hafa skotið vélina niður og réttað yfir þeim með sönnunargögnum um tegund flugskeytisins og hvaðan því var skotið.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga