flugfréttir

Borgarstjóri Chicago kynnir nýja flugstöð og fleiri hlið á O´Hare-flugvelli

17. júlí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 20:00

Frá O´Hare-flugvellinum í Chicago

Borgarstjórn í Chicago hefur kynnt enn frekari stækkun á flugvellinum í borginni, O´Hare International (ORD), sem er 4. stærsti flugvöllur heims er kemur að farþegafjölda.

Það var Rahm Emanuel, borgarstjóri Chicago, og stjórn O´Hare-flugvallarins, sem tilkynntu um stækkunina sl. föstudag en til stendur að byggja nýja flugstöð og einnig bæta við brottfararhliðum við þær flugstöðvar sem fyrir eru og þ.á.m. Terminal 5.

„New York, London, Berlín, Peking…. passið ykkur! - Chicago er að koma til ykkar“, sagði Emanuel í ræðu sinni sem hann hélt er hann kynnti stækkunina og næstu framkvæmdir fyrir yfirmönnum undir berum himni sl. föstudag á flugvallarsvæðinu.

O´Hare-flugvöllurinn hefur átt í miklu basli við að halda flugáætlun og verstu seinkanirnar í fluginu vestanhafs hafa verið um Chicago en nú stendur til að sporna við seinkunum með fleiri flugbrautum, fleiri flugstöðvum og fjölgun hliða.

Með stækkuninni er verið að koma til móts við áframhaldandi fjölgun farþega til næstu 30 til 40 ára en framkvæmdirnar eru einungis hluti af framkvæmdum sem hafa staðið yfir sl. misseri en sl. haust var tekin í notkun níunda flugbrautin á O´Hare-flugvelli auk þess sem nýr flugturn var opnaður í október í fyrra.

Rahm Emanuel, borgarstjóri Chicago, kynnir stækkunina fyrir yfirmönnum og stjórnendum O´Hare flugvallarins utandyra sl. föstudag

Framkvæmdirnar verða gerðar í tveimur skrefum en fyrst verður níu hliðum bætt við Terminal 5 flugstöðina, sem þjónar millilandaflugi, en kostnaður við þær framkvæmdir eru um 3,6 milljarður króna.

Gömul flugstöð mun víkja fyrir nýrri

Næsta skrefið, sem er mun stærra í umfangi, er að rífa niður Terminal 2, sem er elsta flugstöðin á O´Hare-flugvellinum, í þeim tilgangi að smíða nýja Terminal 2 flugstöð.

Ekki er vitað hversu mörg hlið hin nýja flugstöð mun koma til með að hafa en American Airlines, Untied, Spirit Airlines og Delta Air Lines, hafa öll farið fram á að þau vilji fá fleiri brottfararhlið.

Kynningarefni varðandi stækkunina á blaðamannafundi utandyra á O´Hare-flugvelli

Verið er að skapa pláss fyrir Terminal 2 flugstöðina nýju með því að rífa niður eldri byggingar auk þess sem tvær flugbrautir munu víkja fyrir nýjum flugbrautum og þá verður farið í að leggja nýjar akbrautir, búa til ný afísingarstæði og þá gerir áætlunin fyrir tveimur nýjum flugvallarhótelum á svæðinu.

Mikil samstaða er með verkefninu og framkvæmdunum og hafa öll helstu bandarísku flugfélögin fallist á áætlunina sem þau munu fjármagna að hluta til með því að leggja á lágt gjald ofan á hvern farþega sem mun með tímanum safnast saman í upphæð sem fer í framkvæmdirnar.

O´Hare-flugvöllurinn hefur verið að sækja í sig veðrið hægt og bítandi frá því 11. september en mikil þrengsli hafa verið á flugvellinum upp á síðkastið.

Tölvugerð mynd af Terminal 5 með níu hliðum til viðbótar







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga