flugfréttir

Flugvallarstarfsmenn ýta þotu Iberia úr hlaði með handafli

18. júlí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 18:52

Canadair CRJ900 þotunni var ýtt úr hlaði með farþegum um borð á flugvellinum í Róm í gær

Stundum er nauðsynlegt að taka málin í sínar eigin hendur en í gær þurftu nokkrir flugvallarstarfsmenn á Fiumucino-flugvellinum í Róm að taka sig til og ýta farþegaþotu frá hlaði með farþegunum um borð.

Flugi Iberia frá Róm til Vigo á Spáni hafði seinkað um eina og hálfa klukkstund vegna tæknilegra vandamála þar sem ekki var hægt að ýta vélinni frá hliði með hefðbundnum leiðum.

Ekki fylgir fréttinni hvers vegna ekki var notast við viðeigandi ökutæki til að ýta vélinni frá hlaði en vandamálið var leyst eftir að um 15 starfsmenn frá flugþjónustunni Aviapartner tóku sig til og ýttu vélinni með handafli með farþega og áhöfn um borð.

Vélinni var ýtt undir eftirliti frá flugumferðarstjórum sem fylgdust með út flugturninum og voru í sambandi við annan aðila á jörðu niðri á meðan gulir flugvallarbílar afmörkuðu svæðið á meðan.

Hér að neðan má sjá stutt myndskeið sem tekið var er starfsmennirnir ýttu vélinni sem er af gerðinni Canadair CRJ900 en slíkt þota vegur 21 tonn en fullhlaðin með eldsneyti, farangur og farþega getur þyngd hennar numið allt að 38 tonnum.

Aðgerðin heppnaðist vel og fór vélin í loftið skömmu síðar áleiðis til Vigo klukkan 16:30 en áætlaður brottfarartími var klukkan 15:10.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga