flugfréttir
FedEx fær leyfi til að hefja fraktflug til Kúbu
Boeing 777F, fraktþota FedEx Express
Bandarísk stjórnvöld hafa gefið vöruflutningaflugfélaginu FedEx Express leyfi til þess að hefja reglubundið fraktflug til Kúbu.
Leyfið er gefið út til næstu tveggja ára og fær FedEx að fljúga fimm virka daga frá Miami til Varadero á Kúbu með frakt fram til júlí árið 2018 og
mun félagið nota Boeing 757-200F fraktþotur til flugsins.
FedEx hafði upphaflega sótt um leyfi fyrir flugi frá Miami til Havana en breytti beiðninni og sótti um flug til Varadero þess í stað og mun
fraktflug hefjast í janúar árið 2017.
Bandarísk yfirvöld gáfu nýlega bandarískum flugfélögum leyfi til að hefja flug til Kúbu en það eru þó kvótatakmörk upp
á tuttugu dagleg flug milli Havana og Bandaríkjanna og kvóti upp á tíu dagleg flug milli 9 annarra flugvalla á Kúbu og Bandaríkjanna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.