flugfréttir

Tveir ölvaðir flugmenn handteknir í Glasgow

- Áttu að fljúga Airbus A310 farþegaþotu til Toronto

19. júlí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 11:55

Airbus A310 þota Air Transat á flugvellinum í Glasgow í morgun

Tveir flugmenn voru handteknir í gær á flugvellinum í Glasgow (GLA) eftir að áfengi mældist í blóði þeirra skömmu áður en þeir voru að fara um borð í farþegaþotu sem þeir áttu að fljúga til Kanada.

Um var að ræða kaptein og aðstoðarflugmann hjá kanadíska flugfélaginu Air Transat sem áttu að fljúga Airbus A310 þotu til Toronto en 345 farþegar áttu bókað flug með vélinni.

Flugmennirnir, sem eru 39 ára og 37 ára, voru teknir í handahófskennt áfengispróf og kom í ljós að áfengismagn í blóði þeirra mældist 27 milligrömm á hvern 100 millilítra af blóði en mörkin samkvæmt reglugerðum eru 20 mg.

Flugfélagið gaf út tilkynningu vegna málsins til þeirra farþega sem biðu eftir fluginu þar sem þeim var tilkynnt seinkun án þess að fram kom hver ástæðan var en þeim var boðið að þiggja frímiða upp á 18,600 krónur á hvern farþega.

Flugið, sem átti að fara í loftið kl. 13:00 í gær að staðartíma, fór í loftið í morgun kl. 10:30 og var því 21 klukkustunda seinkun á fluginu en farþegi einn, sem var um borð í vélinni í gær, sagði að þeim hefði verið tilkynnt að vélin gæti ekki farið í loftið vegna ástæðna er snúa að flugrekstri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga