flugfréttir

CS100 mun fá aukið flugþol - Mun geta flogið frá London til New York

- Fær vottun síðar í ár fyrir bröttu aðflugi að London City

19. júlí 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:20

CSeries CS100 vél Swiss International Air Lines

Bombardier hefur tilkynnt að flugþol CS100 þotnanna verði aukið um 260 kílómetra en með því munu vélarnar geta flogið 4,685 kílómetra með 108 farþega um borð.

Með þessu mun flugþol CS100 vélanna verða tvöfalt meira en flugþol Avro R85 þotnanna sem þýður að CS100 getur flogið frá London City til Moskvu og þessvegna yfir Atlantshafið til New York (JFK) með 42 farþega um borð sé hún útbúin með færri sætum.

British Airways hefur notað Airbus A318 þotur á sérstakri flugleið frá London City til New York en þó með stoppi á Shannon á Írlandi þar sem vélarnar hafa bætt við eldsneyti áður en haldið er yfir Atlantshafið.

„Við hönnuðum CS100 m.a. svo hún gæti flogið frá London City með smá breytingu á stjórnflötum og auk þess sem takki, sem flugmenn ýta á, gefur flugvélinni betri lendingareiginleika á sumum flugvöllum“, segir Rob Dawar, yfirmaður yfir CSeries-verkefninu hjá Bombardier.

Brattara aðflug og fráflug er um London City-flugvöllinn með 5,5 gráðu „glideslope“ og þarf CSeries CS100 að ná 8,5 gráðum til að fá vottun til að fljúga um London City-flugvöllinn sem er staðsettur í miðborg Lundúna við Thames-ánna.

CS100 þotan hefur lokið við tilheyrandi prófunum í Kanada vegna þessarra aðstæðna en með því mun SWISS Internatinal Air Lines geta byrjað að fljúga vélinni til London City frá Zurich og Genf á næsta ári.

Með auknu flugþoli mun CS100 einnig geta flogið frá London City beint til Dubai með 80 farþega um borð og einnig yfir Atlantshafið til New York, Boston, Toronto, Montréal og Chicago.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga